Lögreglan á stöð eitt fékk tilkynningu í dag vegna vinnuslyss í hverfi 102 þar sem kona féll úr stiga og hlaut höfuðhögg. Hún var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttökuna til athugunar en ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um líðan hennar að svo stöddu.