Þyrla Landhelgisgæslunnar var á sveimi yfir Ölfusá við Selfoss síðdegis. Lögreglu barst tilkynning um klukkan fjögur síðdegis um að óttast væri að maður hefði farið í ána, að sögn Þorsteins M. Kristinssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi. Þyrlan var kölluð út ásamt björgunarsveitum. Maðurinn fannst heill á húfi og viðbragð var afturkallað.Ölfusá við Selfoss.Mynd / RÚV