Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, sem nú situr þing Norðurlandaráðs í Helsinki, gerir ekki athugasemdir við tilhögun símtals forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands við Pútín.Þeir ræddu við Pútín í síma í morgun um diplómatískar leiðir til að enda stríðið. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur efasemdir um að þetta hafi verið réttu vinnubrögðin, Norðurlöndin eigi að tala einni röddu.Kristrún gerir ekki athugasemdir við afstöðu forsætisráðherra Danmerkur. Ef þessir tveir menn hafi traust Úkraínuforseta í verkefnið þá verði að vilja þann vilja, það sé aðalmálið, segir Kristrún.„Ég ræddi bæði við forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands í morgun. Við áttum auðvitað að eiga fund á öðrum forsendum í byrjun og frétti svo sem af þessu símtali rétt áður en af því varð