Hægt er að fylgjast með ferðum bíla annars fólks í Parka-appinu með því að skrá bílnúmer þeirra í „Keyrt&Kvitt“ og greiða fyrir bílastæðaþjónustu þess.Keyrt&Kvitt gengur þannig fyrir sig að myndavélar lesa bílnúmer við inn- og útskráningar á tilteknum stöðum og gjaldfæra lagningu bíla sjálfkrafa. Sá sem hefur skráð bíllinn í appið hjá sér fær þá tilkynningu um rukkunina og staðsetningu hennar.Freyr Ólafsson, framkvæmdastjóri Parka, segir að fyrirtækinu hafi aldrei borist tilkynningar um að slíkt hafi verið stundað. „Við myndum bregðast við því strax,“ segir hann.Freyr segir að sá sem ætlaði að stunda slíkt þyrfti enn fremur að gefa upp símanúmer, netfang og kortaupplýsingar sínar. Ekki færi því á milli mála hver það væri að baki athæfinu.Inntur eftir því hvort eigendur bílanna yrðu þess ás