Engin bein þjónustustörf lögð niður

Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og fyrrverandi borgarstjóri, segir uppsagnirnar sem gripið var til í dag miða að því að verja og bæta framlínuþjónustu við borgarbúa og ráðast í viðhald og uppbyggingu.50 var sagt upp störfum og alls 75 stöðugildi lögð niður. Þetta er þriðja uppsagnarlota borgarstjórnarinnar sem tók við í júní.„Reksturinn gengur ekki nægilega vel og það er viðvarandi hallarekstur. Það er óvissa og ekki bjart framundan í efnahagsmálum, vextir háir og verðbólgan þrálát og við erum í þessu til þess að geta ráðist í betri þjónustu og innviðafjárfestingar sem mikil krafa er um,“ segir Einar.Einar Þorsteinsson segir engin bein þjónustustörf eða tekjuskapandi störf hafa verið lögð niður í uppsagnarlotu í dag. Hann segir aðgerðirnar miða að því að bæta framlín
Engin bein þjónustustörf lögð niður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar