Erfitt og flókið að átta sig á nýjum einkunnum

10. bekkingarnir Guðdís Magnúsdóttir í Akurskóla, Urður Óskarsdóttir í Laugalækjarskóla og Jakob Ægisson í Álfhólsskóla mættu í Spegilinn til að ræða um breytt einkunnakerfi.Nemendur í 10. bekk fá einkunnir í tölustöfum en ekki bókstöfum í fyrsta sinn um árabil. Töluvert hefur verið deilt um hvort það sé gagnsærra og betra eður ekki.Þau eru öll frekar ánægð í skólanum en sammála um að þetta sé flókið og ekki auðveldara að átta sig á einkunnunum, sem eru í tölustöfum. Þau segja misjafnt milli skóla hvort kvarðinn byrji í einum eða fjórum.Vissulega hafi ekki alltaf verið ljóst hvort B sé hátt eða lágt en þau séu ekkert betur stödd og hafa á tilfinningunni að hlutunum hafi verið breytt til að breyta. Betra væri ef þetta hefði verið tekið upp í 8. bekk og fylgt nemendum síðan út grunnskólann.
Erfitt og flókið að átta sig á nýjum einkunnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar