Sveitarfélög á Norðurlandi eystra vilja aðalstöð í sameinuðu lögregluembætti á Akureyri

Sveitarfélög á Norðurlandi eystra sjá tækifæri í stærri lögregluembættum, að því er segir í umsögn í samráðsgátt. Formaður þeirra segir aðalstöð embættisins eiga að vera á Akureyri.Tryggja þarf að aukin stærð stjórnsýslueininga leiði ekki til að ákvarðanataka færist fjær samfélögum. Þetta segir í umsögn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra um frumvarp þar sem lagt er til að sameina lögregluembætti. Þar segir líka að stjórnin sjái að tækifæri geti legið í stærri faglegum einingum, meðal annars til að byggja upp sérhæfð störf og verkefni á landsbyggðunum.Heimir Örn Árnason, formaður SSNE, segir lykilatriði að samtökin styðji öflugri og faglegri lögreglu en vanda þurfi til verka. „Við höfum aðeins áhyggjur af fjarlægri stjórnsýslu og veikari þjónustu á landsbyggðinni,“
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra vilja aðalstöð í sameinuðu lögregluembætti á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar