Fleiri uppsagnir ekki á dagskrá

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir fleiri uppsagnir ekki á dagskrá innan borgarkerfisins.„Næstu aðgerðir hagræðingarhóps munu snúa að því að rýna hjá okkur eignasafnið, innkaupamálin og veikindahlutföll borgarstarfsmanna sem eru gríðarhá og kosta okkur 6–7 milljarða á ári hverju,“ segir hún.Borgarstjórn ákvað að segja upp 50 manns í dag. Stöðugildum er fækkað um 74 á fimm sviðum borgarinnar. Þetta er þriðja lota uppsagna nýs meirihluta í miðlægri stjórnsýslu. Samtals hefur stöðugildum verið fækkað um 130.Hildur telur sig geta fullyrt að uppsagnirnar eigi ekki að hafa áhrif á þjónustu við borgara.„Miðlæga kerfið og yfirbyggingin þurfa að aðlagast fækkun starfsmanna en borgararnir eiga ekki að þurfa að finna fyrir þessu.“Aðgerðirnar í dag eiga að skila um 1,3 milljarða hagræðingu árlega.
Fleiri uppsagnir ekki á dagskrá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar