„Niðurstaðan getur orðið að Orkuveitan eigi áfram allt fyrirtækið. Það er auðvitað ekkert útilokuð niðurstaða [...] Við ætlum ekki að selja félagið ódýrt.“Þetta segir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar.Stjórn Orkuveitunnar samþykkti í gær umboð vegna mögulegrar einkavæðingar Ljósleiðarans. Fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórninni greiddi atkvæði gegn skrefinu og telur að Ljósleiðarinn þurfi að vera í opinberri eigu. UMBOÐ HÁÐ SAMÞYKKI SVEITARFÉLAGA Fyrirtækið er að fullu í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Umboð til mögulegrar einkavæðingar er háð því að eigendur samþykki það. Þeir eru Reykjavíkurborg, Akranes og Borgarbyggð.Séu sveitarfélögin samþykk verður það í höndum forstjóra Orkuveitunnar að ákveða hvort fyrirtækið verður selt.Það er þó möguleiki að eignarhald fyrirtækisins br