Íbúar landsbyggðarinnar segja margir að vegið sé að byggðum fjarri borginni með síhækkandi ferðakostnaði, breytingum á loftbrú, kílómetragjaldi og hækkandi eldsneytisverði.Fréttastofa skoðaði nokkur dæmi um hvað slíkar ferðir gætu kostað. Í dæmunum er reiknað með loftbrúarafslætti, sem íbúar landsbyggðarinnar geta notað fyrir sex flugleggi á ári. EKKI GLEYMA BENSÍNI, KÍLÓMETRAGJALDI OG VEGGJÖLDUM Svo þarf reyndar líka að reikna með eldsneyti í akstri til Akureyrarog gjaldi í gegnum Vaðlaheiðargöng. Ef við reiknum með að fjölskyldan sé ekki með áskrift í göngin kostar 4.432 krónur fyrir báðar leiðir. Og svo gætu bæst við um 3.500 krónur í viðbót bílastæðagjöld á Akureyrarflugvelli.Svo gæti það farið svo að fjölskyldan væri búin að fullnýta loftbrúnna þetta árið - og fengi þá engan afslát