70 sakborningar eiga að mæta fyrir rétt á mánudag ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Þetta kann að vera það sakamál Íslandssögunnar þar sem flestir eru ákærðir. 65 voru ákærðir í Laxárvirkjunarmálinu eftir að Miðkvíslarstíflan efst í Laxá var sprengd í loft upp 1970.Vísir greindi fyrst frá ákærunni og kveðst hafa heimildir fyrir því að ákærurnar séu tilkomnar vegna fjársvika sem beindust gegn Landsbankanum. Þar var galli í tölvukerfi notaður til að færa fé milli reikninga. Gallinn varð til þess að féð hvarf ekki af þeim reikningum sem féð var fært af.Fram kom í fréttum RÚV í fyrra að 400 milljónir hefðu verið sviknar út úr Landsbankanum og 10 milljónir úr Arion banka. Þá var búið að kyrrsetja 250 milljónir króna og vonir stóðu til að yfirvöld næðu haldi á meira fé sem svikið hafði ve