Kostnaður erlendra ferðamanna við að heimsækja Ísland hefur hækkað meira en tvöfalt umfram það sem gerst hefur í helstu samkeppnislöndum frá árinu 2010, en Ísland er núna farið að dragast hlutfallslega nokkuð aftur úr þegar kemur að fjölgun ferðamanna á heimsvísu. Samkvæmt forstjóra Stoða myndi fjögurra prósenta fjölgun erlendra ferðamanna skila ríkissjóði og öðrum opinberum aðilum meiri tekjum en áformað er að afla með nýjum sköttum á greinina.