Leit í sprungunni þar sem Lúðvík Pétursson féll niður í janúar 2024 hófst skömmu fyrir hádegi. Unnið var að því í gær og í morgun að koma upp aðstöðu og tryggja aðstæður eins og hægt er. Fyrsti sigmaðurinn fór ofan í sprunguna á tólfta tímanum.Lúðvík vann að því að fylla upp í sprungu þegar hann hvarf. Ekkert hefur spurst til hans síðan þrátt fyrir mikla leit í janúar 2024. Sérfræðingar voru fengnir til að meta aðstæður á slysstað. Niðurstaðan var að óhætt væri að senda sigmenn niður í sprunguna til að kanna aðstæður til leitar.Fjölskylda Lúðvíks hefur beitt sér fyrir að yfirvöld reyni að ná honum upp úr sprungunni. Þau hafa þó lagt áherslu á að fara verði að þessu með gát og að öðrum verði ekki stefnt í hættu.