Forseti Finnlands, Alexander Stubb, og forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, ræddu við Pútín Rússlandsforseta í síma í morgun um leiðir að stríðslokum í Úkraínu. Símtalið var ákveðið í samráði við Volodymyr Zelenský Úkraínuforseta sem þeir hittu í Osló fyrir viku.Finnlandsforseti hefur lýst samtalinu sem opinskáu og innihaldsríku. „Við erum nágrannaríki Rússlands og útkoma stríðsins á eftir að hafa bein áhrif á öryggi Evrópu. Það þarf beinar viðræður til að ljúka stríðinu,“ er haft eftir Stubb í sameiginlegri tilkynningu hans og Støre.NRK, norska ríkissjónvarpið, hefur eftir Støre að stríðið hafi í för með sér mikinn fórnarkostnað. Fjöldi fólks hafi verið drepinn og eyðileggingin sé mikil. Þjáningarnar eigi eftir að hafa áhrif á næstu kynslóðir.Stubb og Støre eru báðir í Helsinki þar