Málefni um meint vanhæfi Katrínar Sigurjónsdóttur var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar á dögunum. Sveitarstjórnin samþykkti samhljóða bókun sem styður Katrínu í starfi.Í bókuninni segir: „[Sveitarstjórn] lýsir fullu trausti og stuðningi við Katrínu í störfum sveitarstjóra og telur hana almennt ekki vera vanhæfa til að fjalla um málefni fiskþurrkunar Samherja á vettvangi sveitarfélagsins. Vanhæfi er þó metið í hvert skipti líkt og í öllum málum sem sveitarstjórn fjallar um.“ TELJA UMFJÖLLUN RÚV Á HÆPNUM FORSENDUM Katrín, sem áður starfaði sem sveitarstjóri í Norðurþingi og Dalvíkurbyggð, hóf störf 5. ágúst í Þingeyjarsveit. Fram kemur að hún hafi gert grein fyrir tengslum sínum við Samherja í gegnum fyrirtæki hennar og eiginmanns hennar, Samleið.Sveitarstjórnin lýsir