Tugum sagt upp hjá borginni

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar verður sagt upp í hagræðingaraðgerðum sem voru til umræðu á lokuðum fundi í borgarstjórn í morgun. Uppsagnirnar ná til allra sviða nema skóla- og velferðarsviða. Þetta herma heimildir fréttastofu.Borgarstjórn kom saman á lokuðum fundi í morgun og er efni hans trúnaðarmál. Fundinum lauk upp úr klukkan tíu í morgun.Borgarfulltrúar sem fréttastofa ræddi við að fundi loknum sögðust ekkert geta tjáð sig um efni fundarins vegna trúnaðar.„Við getum ekkert tjáð okkur núna,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún boðaði frekari upplýsingar síðar í dag.Hildur og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, verða gestir Bergsteins Sigurðssonar í Kastljósi í kvöld.„Það var aðeins tekist á,“ sagði Pétur um fundinn.„Það er óheimilt,“ sagði Ari Edwald, oddviti Mi
Tugum sagt upp hjá borginni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar