Undirbúa leitina að Lúðvík

Unnið var að því í morgun að tryggja aðstæður í Grindavík þar sem leita á að líki Lúðvíks Péturssonar í dag. Lúðvík féll í sprungu í janúar 2024 þegar hann vann að því að fylla í sprungu við einbýlishús eftir hamfarir í bænum.Sigmenn ætla að fara niður í sprunguna í dag og leita Lúðvíks. Í gær hófst vinna á vettvangi við að afmarka svæði og tryggja aðstæður. Þeirri vinnu var haldið áfram í morgun. Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, sagði í gær að fjölskyldan finndi bæði fyrir fögnuði og kvíða vegna leitarinnar. Fjölskyldan hafði lengi beðið um að leitað yrði að líki Lúðvíks og reynt að ná því upp. Elías lagði þó áherslu á að fara yrði varlega svo aðrir yrðu ekki settir í hættu.
Undirbúa leitina að Lúðvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar