„Svo vaknaði ég þarna um morguninn, með öll fjögur börnin í kringum mig, og ég hugsaði: En hvað ef þau lenda í slysi, eftir einhver ár, sem námsmenn? Þetta er búið að breyta einhverju hjá þeim. Og það fyllti mig af einhverju stolti að hafa haldið alltaf áfram og að ég hafi ekki snúið við þegar þetta var eitthvað erfitt og við höfum unnið þetta. Þetta skiptir líka held ég máli fyrir alla námsmenn í framtíðinni. Ég er bara gríðarlega stolt af því,“ segir Elva Björk Haraldsdóttir, rúmlega þrítug fjögurra barna móðir, um dóm sem féll í Hæstarétti Íslands um miðjan mánuðinn. Í málinu hafði Elva Björk betur í bótamáli gegn tryggingafélaginu Verði.Með þessum dómi lýkur sjö ára ferli í lífi Elvu Bjarkar sem hófst eftir að hún lenti í bílslysi í Reykjavík. Tveir bílar lentu aftan á bíl sem hún var