Hvasst og blautt gætu verið einkunnarorð veðurs dagsins. Norðaustanátt blæs á landsmenn. Hvassast verður norðvestan til og austan Öræfa þar sem vindur gæti farið nálægt stormstyrk þegar mest verður. Minna blæs þó suðvestan til.Dagurinn verður blautur, en misblautur eftir landshlutum. Mikið rignir norðan- og austanlands og sunnan til rignir eitthvað framan af degi. Norðaustanátt í dag, víða 10-18, hvassast norðvestantil og einnig austan Öræfa um tíma fyrripartinn. Lengst af hægari um landið suðvestanvert. Talsverð rigning norðan- og austanlands, en úrkomuminna sunnantil og víða þurrt þar seinnipartinn. Hiti 4 til 10 stig, mildast suðaustanlands.Lægir í nótt og úrkomuminna, vestlæg átt 8-15 austantil á morgun, en annars mun hægari breytileg átt. Þurrt að kalla seinnipartinn. Vaxandi austanát