Borgarstjóri Osló hefur farið fram á það að ríkisstjórn Noregs veiti rússneskum keppendum ekki vegabréfsáritun vegna keppni sem á að fara fram í vetur, í heimsbikarmótaröðinni í norrænum greinum skíðaíþrótta, á hinu þekkta skíðasvæði Holmenkollen, í útjaðri norsku höfuðborgarinnar.