Yfir 300.000 hafa greinst með öndunarfærasýkingu á indónesíska hluta Borneó frá því í ágúst vegna mengunar af völdum skógarelda og móðu.Indónesíska heilbrigðisráðuneytið greinir frá því að fólkið hafi fengið meðferðir við öndunarfærasýkingum í sjö héruðum eyjunnar. Ráðuneytið hefur komið upp um 500 þjónustumiðstöðvum um Borneó þar sem íbúar geta komið og andað að sér hreinu súrefni og fengið meðferð við ýmsum kvillum af völdum mengunar og móðu.Ástandið er einna verst í Mið-Kalimantan héraði og þar eru 300 slíkar þjónustumiðstöðvar. ÝMIS EITUREFNI Í ANDRÚMSLOFTINU Talið er að um 1,9 milljón hektarar lands hafi brunnið í skógareldunum. Ýmis eitruð efni berast í andrúmsloftið af völdum skógareldanna eins og formaldehýð, blásýra og ammoníak.Skógareldarnir og mengunin eru ekki aðeins ógn við