Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan sjóliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Sjóliðinn Devin Jacob Ballard er grunaður um að hafa kyrkt konuna Önnu Yagi á hótelherbergi 3. október og fyrir að stela eigum hennar. Maðurinn neitaði sök við handtöku en hefur síðan gefið frá sér yfirlýsingar sem benda til þess að hann tengist málinu, segir AFP fréttaveitan.Málið hefur vakið mikla reiði í Japan og kveikt umræður um veru bandaríska hersins á eyjunni, sem skiptar skoðanir eru um.Utanríkisráðherra Japans, Toshimitsu Motegi, segir að verið sé að endurskoða siðareglur fyrir bandaríska hermenn þegar þeir eru utan herstöðvanna. Bandaríski herinn setti tveggja daga hlé á starfsemi sína til að auka aga og kröfur og setti á mánaðarlangt útgöngubann.Bandaríkjahe