Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um sjö eða níu þúsund krónur, heldur hvernig samið er við flugfélagið.Hann vill að ríkið semji um kaup á innanlandsflugmiðum á föstu verði í stað þess að niðurgreiða hlutfall af miðaverði í gegnum Loftbrú.Þóroddur segir núverandi fyrirkomulag ekki taka nægilegt mið af þörfum landsbyggðarfólks sem þurfi að ferðast með skömmum fyrirvara. Þetta kom fram í Silfri kvöldsins.Þóroddur sagði að umræðan um Loftbrú hefði beinst um of að fjárhæð niðurgreiðslunnar í stað þess að skoða hvað flugferðir kosta í raun. Fólk sem þurfi skyndilega að ferðast vegna veikinda í fjölskyldunni eða annarra óvæntra atburða geti þurft að greiða allt að 50 þúsund krónur fy