Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í kirkjunni og flutti Andrés Narfi Andrésson arkitekt hátíðarfyrirlestur um tilurð kirkjunnar í tengslum við vígsluhátíðina.Hann segir að fyrstu hugmyndir um hönnun kirkjunnar hafi komið fram í samkeppni árið 1929. Sett voru skilyrði í lýsingu hennar að hún yrði að vera í rómönskum stíl og drógu margir því þátttöku sína til baka.„Eftir sem áður eru þrír aðilar sem skila inn tillögu og það var síðan niðurstaða byggingarnefndar að engar af þessum þremur tillögum hefðu verið færar til útfærslu nánari útfærslu,“ segir Andrés.Ríkisstjórn Íslands tekur þá af skarið og ákveður að fela Guðjóni Samúelssyni að hanna kirkju hér og færir meðal annars rök