„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, um innleiðingu nýs einkunnakerfis í Kastljósi. Hann segir marga grunnskóla þegar komna langt í undirbúningi og því ekki raunhæft að snúa við.Stefnt er að því að nemendur í 10. bekk útskrifist næsta vor með tölueinkunnir á kvarðanum 4-10 í stað bókstafseinkunna. Jón Páll segir breytingarnar ekki endilega slæmar en gagnrýnir hversu hratt þær hafi verið innleiddar.Jón Páll var meðal þeirra sex skólastjórnenda sem eiga sæti í skólamálanefnd sem gagnrýndu hvernig ráðherra hefur staðið að breytingum á einkunnagjöf í aðsendri grein á Vísi í dag.Nýi einkunnakvarðinn hafi fyrst verið kynntur í byrjun ágúst, þegar undirbúningur skólaársins var þegar lan