Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, telur að 50–100 börn séu vistuð samkvæmt ákvæði um bráðavistun án þess að ríkið hafi viðhlítandi yfirsýn eða eftirlit með ráðstöfun þeirra. Hann segir sérstaklega mikilvægt að tryggja fræðslu og stuðning þegar börnum er komið fyrir hjá ættingjum.