Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkjanna, og verulegir hagsmunir eru undir að mati framkvæmdastjóra Ferðamálastofu.Talsverð viðhöfn var í Leifsstöð í morgun, þegar von var á Airbus-þotu Air China frá kínversku höfuðborginni Beijing.Þetta var í fyrsta skiptið sem flogið var beint frá Kína með Ísland sem áfangastað. LEIKBREYTIR, SEGIR SENDIHERRANN „Þetta er veruleg aukning á tvíhliða samskiptum. Ég kalla þetta leikbreyti (e. gamechanger) í 55 ára sögu stjórnmálasambands Íslands og Kína,“ sagði He Rulong sendiherra Kína á Íslandi í tilefni þessa.Flogið verður þrisvar í viku - ferðin tekur um fjórtán og hálfan tíma og fyrst í stað verður millilent í Kaupmannahöfn. VERULEGIR HAG