Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík

Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Leit hefst á morgun.Lúðvík Pétursson vann við að fylla í sprungu við einbýlishús við Vesturhóp 29 í Grindavík í janúar 2024 þegar hann féll niður í sprunguna. Hans var leitað við erfiðar aðstæður án árangurs. Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti í dag að leit að líkamsleifum Lúðvíks hefjist á morgun. KVÍÐABLANDIN FEGINSTILFINNING YFIR ÞVÍ AÐ LEIT HEFJIST LOKS Á NÝ „Það er náttúrulega mikill feginleiki hjá allri fjölskyldunni, að þetta sé loksins komið í gang. Um leið er líka einhver kvíði, bæði um hvort það finnist eitthvað en líka ef það finnst ekkert. Það eru blendnar tilfinningar þessa sólarhringana,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks.Til
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar