Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti

Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í svissnesku kantónunni Aargau fann síðar fleiri poka með líkamshlutum manns eftir leit sem framkvæmd var með aðstoð báts og kafara.Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að allt bendi til manndráps, samkvæmt frétt svissneska miðilsins blue News.Lögreglan hefur hafið rannsókn á málinu en hefur engan grunaðan að svo stöddu. Ekki hefur tekist að bera kennsl á hinn látna.
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar