Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur á Alexandar Vučić, fyrrverandi forseta landsins og flokki hans, sem hafði verið við völd í fjórtán ár. „ÞAÐ VARÐ BARA ALLT Í EINU ALVEG ÓTRÚLEGT GLEÐIÁSTAND“ Írena Guðrún Kojic er Serbi og Íslendingur. Hún fór sérstaklega til Serbíu til þess að kjósa því Serbar fengu ekki að kjósa hér á landi. Hún var í höfuðborginni Belgrad í gær þegar fagnaðarlætin brutust út.„Ég var reyndar í heimahúsi þegar forsetinn kom fram í sjónvarpið og viðurkenndi í raun og veru tapið.“Írena segir allt hafa ætlað um koll að keyra þegar niðurstöður kosninganna voru ljósar.„Það varð bara allt brjálað í Belgrad í gær. Bílar allir flautandi, fólk syngjandi og dansand