Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver á Íslandi um 3,7% og gera má ráð fyrir að það hlutfall aukist á næstu árum.„Við sem höfum verið lengi í raforkusölu, við finnum fyrir talsverðum breytingum,“ segir Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun. Eftirspurn eftir raforku sé fyrst og fremst úr gagnaversiðnaði sem gervigreindarbyltingin knýi áfram mikla eftirspurn. Norðurlöndin finni líka fyrir þessu en þar hafi átt sér mikil stað mikil uppbygging í gagnaversiðnaði. Ísland sé nú komið á kortið en fyrir aðeins nokkrum árum hafi áhuginn verið mun minni.Samkvæmt fyrrnefndri greiningu notuðu gagnaver um 300 gígavattsstundir á fyrri helmingi ársins s