Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki ekki að nafnvirði á tólf mánaða tímabili miðað við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans.Áformin voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðarins. Lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2027. Samráði lauk fyrir helgi. Alls bárust 16 umsagnir um málið. SA LEGGJAST GEGN FYRIRHUGAÐRI STYTTINGU Meðal þeirra sem skiluðu umsögn voru Samtök atvinnulífsins sem leggjast gegn áformum ríkisstjórnarinnar. SA segja áformin meðal annars fela í sér takmörkun á samningsfrelsi og valkostum heimila. Þá þrengi hærri greiðslubyrði svigrúm heimila til að byggja upp varasjóð og mæta áföllum.SA séu þó ekki andvíg því markmiði að draga almennt úr vægi verðtrygging