Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er kalt og straumhart en myndbandinu sjást piltarnir stökkva af kletti ofan í fljótið neðan við Goðafoss og synda um hylinn. Annar þeirra virðist lenda í vandræðum í straumnum en þeir komast að lokum báðir í land.Tveir ungir Bandaríkjamenn stukku ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss í september. Lögreglu barst útkall vegna málsins en fljótið er kalt og straumhart.Myndbandið var birt í gær en í texta við það kemur fram að þetta hafi gerst 20. september.Íslenski Instagram-reikningurinn Íslenskt Rugl birti myndbandið í dag. Í svari við fyrirspurn fréttastofu segjast þeir sem standa að reikningnum hafa fengið það sent, en þeir viti ekki hver tók mynd