Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútreikningum, launakjörum og ráðningarfyrirkomulagi.Sveitarfélagið atyrðir fyrirtækið fyrir að hafa ekki brugðist við ítrekuðum beiðnum Eflingar. GAGNRÝNDI MOSFELLSBÆ VEGNA EFTIRLITS Mosfellsbær útvistar ræstingum til fyrirtækisins iClean.Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gagnrýndi bæinn harðlega nýverið fyrir það hvernig staðið var að eftirliti með starfi ræstingafólks í bænum og því hvort ákvæði kjarasamninga væru uppfyllt.Meðal þess sem Sólveig Anna vakti athygli á var að fulltrúar Eflingar hefðu farið inn á þrjá grunnskóla í Mosfellsbæ í vinnustaðaeftirlit í haust.Hún segir að þar hafi sex starfsmenn iClean verið fyrir en að engin