Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi forseta landsins Delcy Rodriguez og ræða málin.Rodriguez tók við forsetaembættinu eftir að bandaríski herinn nam Nicolas Maduro á brott í janúar og flutti til Bandaríkjanna. Hann situr þar í gæsluvarðhaldi ásamt eiginkonu sinni og bíður réttarhalda.Rodriguez og ríkisstjórn hennar hafa lofað kosningum en ekki nefnt dagsetningu.Machado sneri aftur til heimalandsins í gær eftir tæpt ár í útlegð. Þúsundir fögnuðu henni í miðborg Caracas, höfuðborgar landsins. Machado fékk ekki að bjóða sig fram gegn Nicolás Maduro í forsetakosningunum 2024, þrátt fyrir að hafa sigrað í óháðu forvali forsetaframbjóðenda árið áður.