Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunartími hans rennur út í mars á næsta ári. Runólfur greindi sjálfur frá þessu í grein í fréttabréfi Landspítalans sem kom út í dag.„Forstjóratíð mín hefur nú staðið í tæp fimm ár og lýkur upphaflegum skipunartíma mínum 1. mars næstkomandi. Starfið er krefjandi en á sama tíma gefandi. Mikilvægir áfangar hafa náðst og unnið er hörðum höndum að mörgum áhugaverðum verkefnum. Fagmennska starfsfólks í þjónustu við sjúklinga og aukin afköst á því sviði eru mér sérstakt ánægjuefni,“ skrifar Runólfur, sem var skipaður forstjóri Landspítala 1. mars 2022.„Ég hef mikinn metnað fyrir hönd Landspítala og mikla trú á þeim hæfileikum sem búa í mannauði stofnunar
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar