Bandaríski söngvarinn Chris Brown fékk átta mánaða skilorðsbundinn dóm í dag í tengslum við slagsmál á næturklúbbi í Lundúnum fyrir þremur árum. Refsingunni var frestað til eins árs. Hann þarf því ekki að afplána dóminn nema hann fremji annað brot á því tímabili.Brown játaði sök vegna óspekta á almannafæri fyrir dómi í júlí. Atvikið átti sér stað á næturklúbbnum Tape í Mayfair í Lundúnum 2023. Það náðist á öryggismyndavél og var sýnt í dómsal í dag. SÁST SLÁ TIL MANNSINS MEÐ TEKÍLA-FLÖSKU Á myndskeiðinu sést þegar átök brjótast allt í einu út. Brown sést, ásamt öðrum manni, ráðast á tónlistarframleiðandann Abe Diaw. Brown sést meðal annars slá til Diaw með flösku af áfengi tvisvar sinnum.Hinn árásarmaðurinn heitir Omololu Akinlolu og er líka bandarískur. Hann játaði einnig sök vegna ósp