Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun kínversku netverslunarinnar sem ætlað er að bæta úr brotum á reglugerð ESB um stafræna þjónustu. ESB sektaði Temu í maí um 200 milljarða evra fyrir að fyrir að leyfa sölu á ólöglegum vörum, eins og hættulegum barnaleikföngum.Á meðal þess sem Temu ætlar að gera er að rannsaka hvernig meðmælakerfi vefverslunarinnar stuðla að útbreiðslu á ólöglegum vörum. Framkvæmdastjórn ESB, sem fer með eftirlit með stafrænum reglum sambandsins, segir í yfirlýsingu að áætlunin feli í sér fimm aðgerðir til að bæta úr brotunum. Temu hefur nú fjóra mánuði til að gera bráðabirgðaáhættumat.Í yfirlýsingu frá Temu kemur fram að fyrirtækið meti mikils uppbyggileg samskipti við framkvæmdastjórnina.Aðgerðaáætlunin beri vott um skuldbindingu Temu ti