Eyjólfur Ármannsson íhugar breytingar á breytingum á Loftbrú. Ákvörðun sem ráðherra kynnti fyrir helgi mætti mikilli mótstöðu; að niðurgreiða sex flugleggi um fasta krónutölu, 7000 krónur hvern en ekki um 40% eins og hefur verið frá því 2020. Ráðherra skoðar að hækka töluna í 9000 krónur á fluglegg.Ákvörðun innviðaráðherra kom mörgum sveitarstjórum í opna skjöldu. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn, sagði í samtali við fréttastofu á föstudaginn að ekkert samráð hefði verið um málið þrátt fyrir fyrirheit um annað, síðast á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fór í október. MÆTTI MIKILLI MÓTSTÖÐU Ákvörðun ráðherra mætti mikilli mótstöðu um helgina. Bæði sveitarstjórar, kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum, landshlutasamtök og þingmenn bæði í stjórn og stjórnarandstöð