Hálfu Oxford-stræti breytt í göngugötu

Hluta hinnar sögufrægu verslunargötu Oxford-strætis í London var í dag breytt í göngugötu. Sadiq Khan, borgarstjóri í London, sagði að götuhlutanum hefði verið breytt að eilífu. Búið er að loka fyrir umferð bíla og strætisvagna á um eins kílómetra hluta götunnar. Til stendur að gera alla götuna að göngugötu á næstu árum ef vel tekst til með þann hluta sem þegar hefur verið breytt.Borgarstjórinn sagði að þetta væri sögulegur dagur fyrir Oxford-stræti og höfuðborgina alla. Hann sagði að með þessu væri verið að styðja við verslun við götuna. Markmiðið með breytingunni er að fjölga þeim sem fara um götuna. „Götunni hefur hnignað síðustu áratugina, ég myndi segja að henni hafi hnignað skipulega,“ sagði Khan í viðtali við BBC Radio 4. „Ég er ekki reiðubúinn að standa hjá á sama tíma og verslanir
Hálfu Oxford-stræti breytt í göngugötu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar