Sóttvarnastofnun Evrópu telur mjög litla hættu á að ebóla greinist í einhverjum mæli í Evrópu í tengslum við faraldurinn sem geisar í Kongó, Kenía og Nígeríu. Þetta er niðurstaða nýs áhættumats stofnunarinnar sem birt var fyrir helgi.Eitt innflutt smit hefur greinst í Evrópu og þrír sjúklingar hafa verið fluttir þangað. Alls hafa 9.704 smitast í Kongó og hafa 4.687 þeirra látist. Níu smit hafa greinst í Kenía og eitt í Nígeríu. Fyrr á árinu smituðust 20 í Úganda en faraldrinum þar var lýst lokið í ágúst.Faraldurinn hefur áfram mjög litla áhættu í för með sér fyrir íslenskan almenning og fólk í Evrópusambandinu og á Evrópska efnahagssvæðinu, samkvæmt mati Sóttvarnastofnunar Evrópu. Ekki hefur þótt ástæða til að hvetja til almennra ferðatakmarkana til svæðanna þar sem smit hafa greinst. Ekki