„Þetta byrjaði á því að ég las alveg hræðilega bók, vísindaskáldsögu, sem lýsti framtíð þar sem allir voru fastir í einhverjum sýndarveruleika. Ég tók eiginlega þá hugmynd og sneri henni á hvolf og vildi nýta sýndarveruleikann til góðs," segir Svavar sem er starfsmaður Hrafnistu í Hafnarfirði. Hann hefur leitt verkefni þar sem felst í að gefa fólki færi á að ferðast um heiminn með aðstoð sýndarveruleika. Svavar Jónatansson ferðaðist um landið í sumar í þeim tilgangi að gefa íbúum Hrafnistu færi á að ferðast um landið og heiminn.Svavar fór hringinn um landið í sumar og reyndi að ná fjölbreyttu myndefni frá mörgum stöðum. Hann bendir á mikilvægi þess að ungt fólk lifi lífinu meðan það geti; fari og geri hluti í raunheimum, upplifi. Svo kannski seinna meir er hægt að rifja upp minningarnar. „