Fækka ferðum 1. desember

Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu ohf., sem sér um rekstur Strætó, ætlar að fækka ferðum frá og með 1. desember.„Við erum sífellt að þróa leiðarkerfið áfram og finna leiðir til að bæta í þar sem er þörf á því og draga úr þar sem er ekki þörf á því,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.„Það var stóraukin þjónusta haustið 2025 og svo bættum við í aftur núna haustið 2026. En við erum að skoða núna smá skerðingu frá og með 1. desember á ákveðnum leiðum sem við teljum ekki vera þörf á þessari tíðni sem er í dag. Svo erum við líka að skoða núna sérstaklega jólin og svo áfram á næsta ári þá jól, páska og sumarfrí á þeim leiðum þar sem er mikið af skólafólki að draga úr þar. Það er ekki þörf á að halda úti sama þjónustustigi þegar skólafríin eru
Fækka ferðum 1. desember

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar