Leita Lúðvíks á morgun

Hópur manna á vegum lögreglustjórans á Suðurnesjum vinnur að því í dag að undirbúa leit að líki Lúðvíks Péturssonar sem féll í gryfju í Grindavík í janúar 2024. Leitin hefst í fyrramálið. Viðbragðsaðilar og sérfræðingar setja upp vinnusvæði vegna leitarinnar í dag og huga að öryggi áður en leitin hefst í fyrramálið. Fyrr í október var greint frá því að ákveðið hefði verið að senda sigmenn til leitar. Sú ákvörðun byggði á áhættumati verkfræðistofunnar COWI. Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, sagðist um helgina vera þakklátur öllum sem lögðu sitt af mörkum við að ákveða að leitin færi fram og jafnframt þeim sem fara niður gryfjuna til leitar. Um þetta skrifaði Elías á Facebook-síðu sinni.„Engu að síður er erfitt að horfa framhjá því hve skamman tíma það tók að setja Lúlla í þá aðstöðu sem hann
Leita Lúðvíks á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar