Meðlimir skólamálanefndar Skólastjórafélags Íslands segja að nemendur í útskriftarárgangi næsta vors í grunnskólum landsins hafi verið gerðir að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar á einkunnakerfi grunnskóla. Þá fagnar hópurinn því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi hafið frumkvæðisathugun á innleiðingu nýs einkunnakerfis.