„Þetta breytir engu. Ég fagna því auðvitað að hann sé að endurskoða þessa ákvörðun en áfram er þetta skerðing á Loftbrúnni og okkur finnst þetta bara galin vegferð hjá honum að vera í samhliða hækkun á kílómetragjaldinu. Hlutfallslega verða Austfirðingar langverst úti í þessu og þarna er bara gríðarleg afturför.“