Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að þríhliða viðræður milli Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna fari fram í næsta mánuði. Markmiðið með þeim sé að endurræsa friðarviðræður.„Við erum reiðubúnir til viðræðna. Ef þetta snýst um landsvæði verða viðræðurnar að vera á milli leiðtoganna. Önnur atriði eru á sviði tæknilegra úrvinnsluhópa. Því er hægt að ræða þetta allt í nóvember,“ sagði Zelensky í sjónvarpsviðtali.Volodymyr Zelensky.EPA / SERGEY DOLZHENKO