Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands segir að álitamálum og vafaatriðum vegna breytinga Ingu Sæland menntamálaráðherra á námsmati hafi fjölgað eftir því sem liðið hafi á haustið. Nefndin segir að í stað þess að einfalda námsmat hafi skapast fyrirsjáanleg og óhjákvæmileg óvissa um útfærsluna. Þetta segja þeir sex skólastjórnendur sem eiga sæti í skólamálanefnd í aðsendri grein á Vísi í dag. VONANDI EKKI BÖRNIN SEM HÍA Á RÁÐHERRANN „Þrátt fyrir að ráðherra láti sitt færasta fólk þramma með sér þessa leið minnir þessi vegferð óneitanlega ævintýrið um keisarann klæðalausa. Útskriftarárgangur vorsins 2027 hefur verið gerður að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar en vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann í göngunni..“Nefndarfólk segir gott og aðdáunarvert að mennta-