Rúmlega þrítugri konu frá Venesúela, Leidy Díaz, hefur verið vísað frá landinu ásamt börnum sínum tveimur. Leidy Díaz á dótturina Rachell, 13 ára, og soninn Elian sem er fimm ára. Elian er fjölfatlaður, með klofinn hrygg, vatnshöfuð, og notar hjólastól. Þeim er gert að sæta endurkomubanni til Íslands.Kærunefnd útlendingamála kvað upp úrskurð þess efnis í lok september og staðfesti þar með niðurstöðu Útlendingastofnunar frá því í fyrra.Leidy Diaz hefur stefnt íslenska ríkinu vegna þessa og óskað eftir frestun á því að henni verður vísað úr landi ásamt börnunum. Stefnan var lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur um miðjan mánuðinn.Fjallað var um þetta mál Leidy Diaz og barna hennar tveggja í fréttaskýringaþættinum Þetta helst fyrir tæpu ári. Það sem hefur gerst eftir þessa umfjöllun er að Kærune