Tóku á móti barni í sjúkrabíl og björguðu ketti af svölum

Starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fengust við margvísleg verkefni í gær. Auk hefðbundinna sjúkraflutninga og útkalla tóku þeir á móti barni og komu ketti til bjargar. Dreng einum sem fæddist í gær lá á að komast í heiminn. Móðir hans var sótt með sjúkrabíl til að flytja hana á fæðingardeild. Drengurinn beið þó ekki eftir að komið væri á áfangastað heldur fæddist í sjúkrabílnum á leiðinni. Þetta gerðist um kvöldmatarleytið í gær.Sigurjón Hendriksson varðstjóri segir að fæðingin hafi gengið fljótt og vel fyrir sig og að þetta sé myndardrengur. Hann segir það koma fyrir nokkrum sinnum á ári að barn fæðist í sjúkrabíl.Annað sem kemur nokkuð reglulega fyrir er að slökkviliðsmenn komi dýrum til hjálpar. Köttur einn lenti í helst til miklum ævintýrum þegar hann féll af níundu hæð fjölbý
Tóku á móti barni í sjúkrabíl og björguðu ketti af svölum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar